Forsíða | Myndir | Umræður | 1 virkur gestur
Leita 
 

 Valmynd
 Um félagið
 Fréttabréf
 Eldri fréttir
 Fræðsla
 Verkefnabanki
 Fundir / Ráðstefnur
 Námskeið
 Félagsmenn
Sláðu inn notendanafn þitt 
Sláðu inn lykilorðið þitt  
Nýskráning
Gleymt lykilorð?
 
 Námskeið 


Kennarinn - kennslan og geðorðin tíu - 28.02.2009
Félag hússtjórnar- og heimilisfræðikennara auglýsir námskeið dagana 23. - 24. mars  2009 í Skálholti
Kennarinn -  kennslan og geðorðin tíu
Hvernig ræktum við geðheilsuna og aukum þannig vellíðan

Mikil ánægja var með námskeið félagsins vorið 2007 sem haldið var á  hótel Glym. Í ljósi þess var ákveðið að setja saman námskeið í svipuðum stíl en þó með öðrum áherslum. Er það von félagsins að það falli félagsmönnum vel í geð.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur og aðstoðarmaður forstjóra Lýðheilsustöðvar mun fjalla um efni bókarinnar Velgengni og vellíðan. Farið verður yfir þá þætti sem ógna geðheilsunni eins og streitu og álag ásamt þeim þáttum sem hafa verndandi áhrif eins og jákvæða hugsun og góða sjálfsmynd. Einnig verður lögð áhersla á það hvernig megi takast á við áföll og erfiðleika á uppbyggjandi hátt. og auka þannig vellíðan okkar og nemanda okkar.

Umsóknarfrestur er til 13. mars 2009. 
 


>> meira ...

Hið holla bragðskyn - Sumarnámskeið 2008 - 20.02.2008
Félag hússtjórnar- og heimilisfræðikennara heldur námskeiðið Hið holla bragðskyn 
dagana 27.-31. maí 2008 í Kaupmannahöfn.

Námskeiðið er byggt upp sem tveggja daga verklegt námskeið og er haldið í Suhrs heilsuskólanum, http://www.suhrs.dk    Þar verður unnið með alla þætti bragðlaukanna, sætt, súrt, salt, beiskt og þriðja kryddið. Kennarar koma frá Suhrs skólanum.

Nánari upplýsingar veita umsjónarmenn námskeiðsins,
Júlía Ágústsdóttir. Netfang: juliaa@snsk.kopavogur.is                                                          
Kolbrún Sif Halldórsdóttir. Netfang:  kolbrun631@breidholtsskoli.is   
Ef einhverjar spurningar vakna, hafðið þá endilega samband við umsjónarmenn.

Þátttökugjald er 110.000 kr.
Þátttökufjöldi er 18 manns og er umsóknarfrestur til 1. mars 2008 og skal umsókn send til Júlíu Ágústsdóttur, Víðihvammi 19, 200 Kópavogi.

Umsóknareyðublað fyrir námskeiðið fylgir með nýjasta fréttabréfi félagsins sem sent var til félagsmanna ekki alls fyrir löngu. Fréttabréfið er einnig hægt að skoða hér á heimasíðunni og hægt er að prenta eyðublaðið út.


>> meira ...

"Hvernig höndlum við skóla án aðgreiningar?" - 29.08.2007
Til þeirra sem voru á sumarnámskeiði  Félags hústjórnar- og heimilisfræðikennara að Glym dagana 29.-30. maí 2007

Fyrirlesarar hafa nú allir sent inn glósur úr fyrirlestrum sínum sem þið getið nálgast hér á síðunni.
Glósurnar frá Guðjóni Bergmann eru tvenns konar. Annars vegar texti sem auðvelt er að prenta út,
hins vegar hljóðupptaka með slökun sem hægt er að sækja og brenna á disk sér til eignar eða spila hér að neðan:

Myndir frá námskeiðinu má skoða hér.

Með kærri kveðju
Umsjónarmenn námskeiðs.

Hér má skoða fyrirlestrana....

Einnig má lesa hér hugleiðingar tveggja kennara sem sátu námskeiðið, þeirra Þórdísar Guðmundsdóttur í Korpuskóla og Sesselju Traustadóttur í Álftamýrarskóla, "Heimspekilegur hliðarvinkill á heimilisfræðinni".

 

 Tenglar - 17.02.2008 
  • Heimilisfræði
  • Neytendafræði
  • Aðrir vefir

     

  • Félag hússtjórnar- og heimilisfræðikennara - (C) allur réttur áskilinn 2005-2008 - Tölvupóstur: heb@strik.is